fimmtudagur, nóvember 17, 2005

Trölla hvað.....

Hilda vinkona mín var með tröllapróf á síðunni sinni. Ég stóðst ekki mátið og „Stjórnmálatröll“ varð það, heillin!!!
Ég sem hef minna en ekki neitt vit á stjórnmálum og leiðist yfirleitt stjórnmálaumræða, puff.....



Stjórnmálaþurs


Þú ert vanaföst, tilfinningarík félagsvera.

Í margmenni á stjórnmálaþursinn oftar en ekki orðið. Ef einhver hyggst grípa fram í fyrir honum talar hann bara hærra - og það virkar. Hann hefur sterkar skoðanir á flestu, hvort sem um er að ræða fjárlagahalla ríkisins eða það hvort SS eða Goða pylsur eru betri, og gerir hvað hann getur til að þröngva þeim upp á aðra. Stjórnmálaþursinn þarf að passa sig þegar hann er í nærveru þeirra sem eru ósammála honum því blóðþrýstingurinn á það til að rjúka upp.
Stjórnmálaþursinn vantar ekki nýja skó fyrr en það er komið gat á þá gömlu... sem skósmiðurinn segist ekki geta gert við. Stjórnmálaþursinn veit hvar Guðsteinn er með verslun.
Hvaða tröll ert þú?
|